Vatnalíf verður tekið upp sem íslenskt heiti verkefnisins á næstu vikum og mánuðum og mun því smám saman fara að sjást í miðlun verkefnisins.

Grundarfjörður í fararbroddi með blágrænar lausnir

Grundarfjörður vakti athygli á opnu málþingi LIFE Icewater verkefnisins, sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Bærinn er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi sem hefur sett sér skýra stefnu um innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í heilu þéttbýli. Á málþinginu var fjallað um leiðir til að bæta vatnsgæði og vistkerfi, efla flóðavarnir og innleiða blágrænar ofanvatnslausnir. Fulltrúar sveitarfélaga og stofnana sem koma að verkefninu kynntu þar stöðu og framvindu þess.