
Bilun kom upp í vélarrúmi
Í gærkvöldi var boðuð æfing hjá sjóbjörgunarflokki Björgunarfélags Akraness og stóð til að sigla inn á Hvalfjörð þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar tæki einnig þátt í æfingunni. Mannskapur var kominn um borð í björgunarskipið Kristrúnu frá Bjargi í Akraneshöfn þegar bilun kom upp í vélarrúmi. Reykur gaus upp og var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út til reykræstingar. Ekki var eldur laus og þannig lagað enginn í hættu. Öll öryggiskerfi og viðbragð þegar slíkt hendir virkaði sem skyldi, að sögn Ásgeirs Arnar Kristinssonar félaga í BA. „Það kom upp bilun sem lýsir sér þannig að öxulbremsa fyrir annan skrúfuöxul skipsins losnaði ekki og reykur gaus upp í vélarrúminu. Nú tekur við greining og viðgerð og verður skipið ekki sjófært fyrr en viðgerð verður lokið,“ segir Ásgeir.