
Sea Spirit væntanlegt á Akranes á föstudag
Skemmtiferðaskipið Sea Spirit, sem útgerðarfyrirtækið Poseidon gerir út, er væntanlegt til hafnar á Akranesi föstudaginn 25. september. Skipið er skráð í Portugal og tekur 114 farþega en 72 eru í áhöfn þess. Þetta verður fjórða skipakoman á Akranes í sumar.
ATH! Fréttin hefur verið uppfærð m.t.t. réttrar dagsetningar.