Hjáleið um Melasveitarveg í fyrramálið

Vegagerðin hefur gefið heimild til malbikunar á þjóðvegi 1 við Geldingaárveg að morgni föstudagsins 25. september. „Hjáleið verður um Melasveitarveg 505 (10-15 mín aukarúntur). Framkvæmd hefst kl. 05:30 og reiknað er með að henni verði lokið kl. 11:00 fyrir hádegi. Vinsamlegast virðið hraðatakmarkanir og merkingar á svæðinu,“ segir í tilkynningu.