Hvasst í vindstrengjum við fjöll

Snörp haustlægð gengur nú yfir sunnanvert landið með talsverðri úrkomu. Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, en ekki hér um suðvestanvert landið. Engu að síður má sjá á vindælum Vegagerðarinnar að sviptivindir fara langleiðina í 40 m/sek bæði á Kjalarnesi og 35 m/sek við Hafnarfjall. Við Hafursfell á sunnanverðu Snæfellsnesi slær vindur í 30 m/sek í hviðum. Veðurspár gera ráð fyrir að draga muni úr vindi fyrir hádegi í dag.