Félagar úr slysavarnadeildum komu saman í Eyjum

Helgina 11. til 13. september komu 290 félagar úr slysavarnadeildum víðs vegar að af landinu saman í Vestmannaeyjum á Landsmóti slysavarnadeilda 2026. Mótið hófst síðdegis á föstudegi með heimsóknum á söfn og um kvöldið bauð bæjarstjórn Vestmannaeyja til móttöku í Eldheimum. Á laugardeginum tók við fjölbreytt dagskrá með erindum og málstofum. Þar var meðal annars fjallað um kulnun í starfi, stjórnar- og nefndarstarf, fjöldahjálparstöðvar, slysavarnir og hlutverk slysavarnadeilda í aðgerðum. Einnig var rætt um framtíð starfsins og þróun deildanna á næstu árum. Ekki síður var mikilvægt að hittast, skiptast á reynslu og styrkja tengsl milli deilda um allt land. Helginni lauk með hátíðarkvöldverði og skemmtun í Höllinni á laugardagskvöld.