F.v. Þorkell Máni Þorkelsson, Einir Hugi Guðbrandsson og Guðbrandur Gunnar Garðarsson sem bera hitann og þungann af skipulagningu hátíðarinnar. Texti og mynd: TFK

Krakka Rökkur Rokk framundan í Grundarfirði

Það verður mikið um að vera í Grundarfirði dagana 5. – 11. október næstkomandi þegar tónlistarhátíðin Krakka – Rökkur - Rokk fer af stað. Hátíðin er runnin undan rifjum Einis Huga Guðbrandssonar sem er nemandi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Tónlistarskóla Grundarfjarðar og Tónlistarskóla Stykkishólms. Eini fannst vanta fleiri tónlistarviðburði fyrir ungt fólk á Vesturlandi og ákvað að taka málin í sínar hendur. Hann fékk góða hjálp hjá Guðbrandi Gunnari Garðarssyni, föður sínum og Þorkeli Mána Þorkelssyni, frænda sínum en saman eru þeir búnir að fá styrki frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Rökkurdögum í Grundarfirði til að láta þetta verða að veruleika en hátíðin verður hluti af Barnamenningarhátíð Vesturlands.