Fréttir

true

Umhverfisráðherra heimsótti Grundarfjörð

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kom í heimsókn til Grundarfjarðar fimmtudaginn 3. september. Heimsóknin hófst á fundi með bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar. Birkir Jón bæjarstjóri fór þar yfir tækifæri Grundarfjarðar t.d. í ferðaþjónustu, á hafnarsvæðinu og uppbyggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Í máli hans kom fram að Grundarfjörður hafi allar forsendur til að vaxa og dafna…Lesa meira

true

Mikil eftirspurn eftir þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið

Alls bárust 47 umsóknir í Startup Landið, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni, en umsóknarfrestur var til 1. september. Umsóknir bárust víðs vegar að af landinu og endurspeglar fjöldinn þann kraft sem býr í nýsköpun og frumkvöðlastarfi á landsbyggðinni. Íbúar á Vesturlandi reyndust duglegir að sækja um þátttöku, en 17% umsókna voru úr landshlutanum.…Lesa meira

true

Aldurinn kom ekki í veg fyrir sveitaferðir

Prýðilegt haustveður hefur verið að undanförnu og margir sem nýtt hafa sér það. Hin síunga Steinunn Kolbeinsdóttir, íbúi á Höfða á Akranesi, vitjaði æskuslóða sinna í tvígang um helgina. Á laugardag hitti hún frændfólk sitt í Stóra Ási á ættarmóti, en á bænum fæddist hún og ólst upp. Í þeirri ferð fór hún meðal annars…Lesa meira

true

Göngin hreinsuð að næturlagi í næstu viku

Unnið verður við þrif og viðhald í Hvalfjarðargöngum að næturlagi dagana 7. til og með 9. september, frá kl. 23.00 til 6.30. Fylgdarakstur verður um göngin á meðan vinna stendur yfir. „Vegfarendur eru hvattir til að aka varlega og fylgja leiðbeiningum starfsfólks. Við þrif getur myndast mikil hálka í göngunum og því er sérstaklega mikilvægt…Lesa meira

true

Nemendur fengu innsýn í notkun dróna í landbúnaði

BS nemendur í búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands fengu í vikunni góðan gest þegar Arnar Þór Þórsson frá Dronefly mætti á svæðið. Tilefni heimsóknarinnar var að veita nemendum hagnýta innsýn í hvernig nýjasta tækni er að breyta búskap. „Í heimsókninni kenndi Arnar nemendum á drónann DJI Agras T25, en sá dróni er sérstaklega hannaður með nákvæmnislandbúnað…Lesa meira

true

Ólíklegt að náist að fylla kvótann

Nú hafa 72 langreyðar verið veiddar á hvalvertíðinni sem hófst í lok júní. Vísir.is fjallaði um málið. Kvótinn er 150 dýr en í núverandi hvalveiðileyfi skilyrti ráðherra að 34 dýr skyldu veidd austanlands, en vegna fjarlægðar er ekki raunhæft að veiða dýr þar og draga í Hvalfjörð. Hvalveiðum hefur í seinni tíð venjulega lokið í…Lesa meira

true

Ný lög um stórþörungarækt boðuð í haust

Ráðstefnan Gull á grunnsævi haldin á Akranesi Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hyggst í haust mæla fyrir nýju frumvarpi til laga um stórþörungarækt í sjó. Frumvarpinu er ætlað að skapa skýran lagaramma utan um atvinnugrein sem enn er ung hér á landi en talsverðar væntingar eru bundnar við. Ráðherra greindi frá þessu í opnunarræðu sinni á…Lesa meira

true

Styrkir til uppbyggingar vinnustaðaklasa

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Úthlutað verður allt að 50 milljónum króna og er umsóknarfrestur til kl. 12.00 mánudaginn 28. september nk. Byggðastofnun annast umsýslu styrkjanna fyrir hönd innviðaráðherra, sem veitir þá á grundvelli byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036. Styrkirnir falla undir aðgerð B7 um óstaðbundin störf. Markmið aðgerðarinnar…Lesa meira

true

Börn vilja takmarka símanotkun í skólum

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti í gær Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025. Þar er farið yfir stöðu réttinda barna og helstu verkefni embættisins á árinu, en þá voru jafnframt liðin 30 ár frá því umboðsmaður barna tók til starfa. Fram kemur að réttindi barna hafi styrkst verulega á þessum þremur áratugum og…Lesa meira

true

Tveir laxar voru nóg fyrir Jógvan

„Já, það var bara veisla skal ég segja þér á efsta svæðinu í Langá á Mýrum í vikunni, alveg meiriháttar,“ sagði Jógvan Hansen nýkominn úr veiði og tveir laxar voru nóg fyrir kallinn. „Ég skal segja þér að þetta að þetta var veisla. Ég var einn þarna lengst upp á fjalli og frábær veiði. Það…Lesa meira