
Sjálf eru börnin fylgjandi takmörkun símanotkunar í skólum. Ljósm. Colourbox
Börn vilja takmarka símanotkun í skólum
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti í gær Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025. Þar er farið yfir stöðu réttinda barna og helstu verkefni embættisins á árinu, en þá voru jafnframt liðin 30 ár frá því umboðsmaður barna tók til starfa. Fram kemur að réttindi barna hafi styrkst verulega á þessum þremur áratugum og rödd þeirra fengið aukið vægi í samfélaginu. Enn sé þó verk að vinna, meðal annars við að tryggja að sjónarmið barna fái raunverulegt vægi við ákvarðanatöku.