
Vestlenskir aðilar voru duglegir að sækja um þátttöku eins og sjá má á þessu kökuriti.
Mikil eftirspurn eftir þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið
Alls bárust 47 umsóknir í Startup Landið, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni, en umsóknarfrestur var til 1. september. Umsóknir bárust víðs vegar að af landinu og endurspeglar fjöldinn þann kraft sem býr í nýsköpun og frumkvöðlastarfi á landsbyggðinni. Íbúar á Vesturlandi reyndust duglegir að sækja um þátttöku, en 17% umsókna voru úr landshlutanum.