Steinunn komin á bak, en henni til aðstoðar voru mæðginin Höskuldur Kolbeinsson og Lára Gísladóttir. Ljósm. ki

Aldurinn kom ekki í veg fyrir sveitaferðir

Prýðilegt haustveður hefur verið að undanförnu og margir sem nýtt hafa sér það. Hin síunga Steinunn Kolbeinsdóttir, íbúi á Höfða á Akranesi, vitjaði æskuslóða sinna í tvígang um helgina. Á laugardag hitti hún frændfólk sitt í Stóra Ási á ættarmóti, en á bænum fæddist hún og ólst upp. Í þeirri ferð fór hún meðal annars á hestbak, en yfir þrjátíu ár er síðan hún gerði það síðast. Það var svo ekki síður tilhlökkunarefni hjá hinni tæplega 98 ára konu að komast á berjamó eins og öll hin árin, en það gerði hún á mánudaginn. „Æji, ég gat ekki lagt það á dóttur mína hana Kollu að keyra með mig tvo daga í röð, þannig að hún fékk að hvíla á sunnudaginn,“ sagði Steina og hlær. Myndirnar fá þessum ljúfu ferðum fá að tala sínu máli.

Komin á berjamó á æskuslóðum