Signý Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, Ágústa Einarsdóttir bæjarfulltrúi, Jósef Kjartansson, bæjarfulltrúi, Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, Jón Skafti Gestsson sérfræðingur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Fannar Þór Þorfinnsson forseti bæjarstjórnar, Bjarni Sigurbjörnsson bæjarfulltrúi, Aðalsteinn Jósepsson formaður bæjarráðs og Þuríður Gía Jóhannesdóttir formaður skipulags- og umhverfisnefndar. Ljósm. grundarfjordur.is

Umhverfisráðherra heimsótti Grundarfjörð

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kom í heimsókn til Grundarfjarðar fimmtudaginn 3. september. Heimsóknin hófst á fundi með bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar. Birkir Jón bæjarstjóri fór þar yfir tækifæri Grundarfjarðar t.d. í ferðaþjónustu, á hafnarsvæðinu og uppbyggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Í máli hans kom fram að Grundarfjörður hafi allar forsendur til að vaxa og dafna en þá sé nauðsynlegt að innviðirnir séu ekki farartálmi á þeirri vegferð. Rætt var um leit að heitu vatni og styrkingu raforkukerfisins á Snæfellsnesi.