Hvalur á skurðarplaninu. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Ólíklegt að náist að fylla kvótann

Nú hafa 72 langreyðar verið veiddar á hvalvertíðinni sem hófst í lok júní. Vísir.is fjallaði um málið. Kvótinn er 150 dýr en í núverandi hvalveiðileyfi skilyrti ráðherra að 34 dýr skyldu veidd austanlands, en vegna fjarlægðar er ekki raunhæft að veiða dýr þar og draga í Hvalfjörð. Hvalveiðum hefur í seinni tíð venjulega lokið í síðari hluta septembermánaðar þótt gerst hafi að þær hafi teygst inn í októbermánuð. Það ræðst þó mest af veðri og veðurhorfum en á þessum árstíma verða brælur tíðari auk þess sem birtutíminn styttist verulega. Því er ekki líklegt að takist að veiða upp í langreyðarkvóta ársins.

Ólíklegt að náist að fylla kvótann - Skessuhorn