
Styrkir til uppbyggingar vinnustaðaklasa
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Úthlutað verður allt að 50 milljónum króna og er umsóknarfrestur til kl. 12.00 mánudaginn 28. september nk. Byggðastofnun annast umsýslu styrkjanna fyrir hönd innviðaráðherra, sem veitir þá á grundvelli byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036. Styrkirnir falla undir aðgerð B7 um óstaðbundin störf. Markmið aðgerðarinnar er að efla búsetufrelsi með því að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytni starfa á landsbyggðinni. Með stuðningi við vinnustaðaklasa er jafnframt stefnt að því að skapa betri aðstöðu fyrir óstaðbundin störf og styrkja atvinnulíf utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta er í annað sinn sem auglýst er eftir umsóknum um styrki til vinnustaðaklasa. Í mars síðastliðnum voru veittir styrkir til 26 vinnustaðaklasa, samtals að fjárhæð tæplega 50 milljónir króna.