Fréttir

true

Meistaramót Íslands 11–14 ára

Um liðna helgi hélt Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar Meistaramót Íslands í flokki 11–14 ára í Borgarnesi. Um 150 keppendur tóku þátt í mótinu víðs vegar að af landinu. „Mótið gekk vonum framar og var mikil stemning meðal keppenda, þjálfara og áhorfenda í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli. Einnig var afar skemmtilegt að geta nýtt sér nýju höllina bæði til…Lesa meira

true

Bandero dregið til hafnar á Akranesi

Seint í gærkvöldi var Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, dregið frá Reykjavík til hafnar á Akranesi. Ástæða þess var sú að rýma þurfti til í höfninni í Reykjavík fyrir sjö herskip sem væntanleg eru þangað til að taka þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi. Bandero var dregið yfir flóann þar sem ekki má sigla skipinu. Í kjölfar ógnandi…Lesa meira

true

Árleg kaffisala framundan í Ölveri

Hin árlega kaffisala í sumarbúðum KFUM og KFUK í Ölveri í Hvalfjarðarsveit verður núna á sunnudaginn 23. ágúst milli klukkan 13:00 og 17.00. Salan er rómuð fyrir vandað kaffihlaðborð þar sem borðin svigna undan krásum. Gott að njóta í fallegu umhverfi. Allur ágóði af kaffisölunni rennur til uppbyggingar sumarbúðastarfsins. Allir velkomnir! -fréttatilkynningLesa meira

true

Tíðindi af verkefnum lögreglu

Mikil umferð var um umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið, mest á miðvikudaginn þegar almyrkvi af sólu var. 69 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur. Að auki var 281 ökumaður myndaður af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Sjö ökumenn voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum…Lesa meira

true

Einar Margeir með glæsilegan árangur á EM í París

Einar Margeir Ágústsson úr Sundfélagi Akraness átti frábært Evrópumeistaramót í París dagana 10.–16. ágúst. Hann bætti sig í öllum þremur einstaklingsgreinum sínum og setti um leið þrjú Akranesmet. Í lok mótsins var hann einnig í íslensku boðsundsveitinni sem setti nýtt Íslandsmet í 4×100 metra fjórsundi. Í öllum þremur einstaklingsgreinum sínum synti hann hraðar en áður…Lesa meira

true

Boðar kúvendingu í nýtingu hvalkjöts

Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. sagði í viðtali í Morgunblaðinu í dag hafa ákveðið að hætta að selja hvalkjöt til Japans og hyggst þess í stað nýta kjötið til framleiðslu á járnbætiefni fyrir fólk. Kristján segir að járnskortur sé útbreiddur og því sé slík nýting á kjötinu öflugt úrræði. „Spendýr sjávar hafa umtalsvert hærri styrk…Lesa meira

true

Stefán og Katrín Íslandsmeistarar í pútti á Garðavelli

Íslandsmót 60 ára og eldri í pútti fór fram á Garðavelli á Akranesi þriðjudaginn 10. ágúst. Keppt var í sól og sumarblíðu og tóku alls 69 keppendur þátt í mótinu, sem var í umsjón púttdeildar FEBAN. Keppendur komu víða að, en 27 voru frá Púttklúbbi Suðurnesja í Reykjanesbæ, 21 frá FEBAN á Akranesi, 15 frá…Lesa meira

true

Fjögurra daga dagskrá Hvalfjarðardaga að baki – myndasyrpa

Dagana 13. til 16. ágúst fóru Hvalfjarðardagar fram. Þétt dagskrá var alla dagana og fjölmenni sem tók þátt í viðburðum sem í boði voru. Ljósmyndari Skessuhorn kíkti við og fangaði stemninguna á nokkrum stöðum. Veðrið var gott alla dagana eins og glögglega má sjá. Meðal dagskrárliða má nefna að umhverfisverðlaun sveitarfélagsins voru kynnt. Umhverfisviðurkenning var…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu þrjú stig til Eyja

ÍA vann góðan 3:1-sigur á ÍBV í Bestu deild karla á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í gær. Skagamenn nýttu færi sín vel og eru með sigrinum komnir upp í fimmta sæti deildarinnar. Haukur Andri Haraldsson kom ÍA yfir á 39. mínútu og staðan var 1:0 í hálfleik. Markús Páll Ellertsson tvöfaldaði forystuna strax á 48. mínútu…Lesa meira