Tíðindi af verkefnum lögreglu

Mikil umferð var um umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið, mest á miðvikudaginn þegar almyrkvi af sólu var. 69 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur. Að auki var 281 ökumaður myndaður af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Sjö ökumenn voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og tíu stöðvaðir og handteknir grunaðir um ölvun við akstur. Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað, sex voru stöðvaðir sem höfðu ekki réttindi til aksturs þeirra ökutækja sem þeir voru á og þrír kærði fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur.