Boðssundssveitin sem bætti Íslandsmetið. Einar Margeir er lengst til hægri.

Einar Margeir með glæsilegan árangur á EM í París

Einar Margeir Ágústsson úr Sundfélagi Akraness átti frábært Evrópumeistaramót í París dagana 10.–16. ágúst. Hann bætti sig í öllum þremur einstaklingsgreinum sínum og setti um leið þrjú Akranesmet. Í lok mótsins var hann einnig í íslensku boðsundsveitinni sem setti nýtt Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi.