
Boðar kúvendingu í nýtingu hvalkjöts
Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. sagði í viðtali í Morgunblaðinu í dag hafa ákveðið að hætta að selja hvalkjöt til Japans og hyggst þess í stað nýta kjötið til framleiðslu á járnbætiefni fyrir fólk. Kristján segir að járnskortur sé útbreiddur og því sé slík nýting á kjötinu öflugt úrræði.