
Bandero við bryggju á Akranesi í morgun. Ljósm. mm
Bandero dregið til hafnar á Akranesi
Seint í gærkvöldi var Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, dregið frá Reykjavík til hafnar á Akranesi. Ástæða þess var sú að rýma þurfti til í höfninni í Reykjavík fyrir sjö herskip sem væntanleg eru þangað til að taka þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi. Bandero var dregið yfir flóann þar sem ekki má sigla skipinu.