
Sveitarstjóri, fulltrúar úr sveitarstjórn auk handhafa umhverfisverðlauna Hvalfjarðarsveitar 2026. F.v. Bjarki Þorsteinnson, Helgi Þorsteinsson, Olga Magnúsdóttir, Ingibjörg Unnur Pétursdóttir, Eyjólfur Jónsson, Bjarki Borgdal formaður umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar, og Þóra Margrét Júlíusdóttir. Ljósm. Kolla Ingvars
Fjögurra daga dagskrá Hvalfjarðardaga að baki – myndasyrpa
Dagana 13. til 16. ágúst fóru Hvalfjarðardagar fram. Þétt dagskrá var alla dagana og fjölmenni sem tók þátt í viðburðum sem í boði voru. Ljósmyndari Skessuhorn kíkti við og fangaði stemninguna á nokkrum stöðum. Veðrið var gott alla dagana eins og glögglega má sjá.