
Sprett úr spori. Ljósm. UJ
Meistaramót Íslands 11–14 ára
Um liðna helgi hélt Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar Meistaramót Íslands í flokki 11–14 ára í Borgarnesi. Um 150 keppendur tóku þátt í mótinu víðs vegar að af landinu. „Mótið gekk vonum framar og var mikil stemning meðal keppenda, þjálfara og áhorfenda í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli. Einnig var afar skemmtilegt að geta nýtt sér nýju höllina bæði til mótsstjórnar og til upphitunar,“ segir Unnur Jónsdóttir hjá FÍ.