Árleg kaffisala framundan í Ölveri

Hin árlega kaffisala í sumarbúðum KFUM og KFUK í Ölveri í Hvalfjarðarsveit verður núna á sunnudaginn 23. ágúst milli klukkan 13:00 og 17.00. Salan er rómuð fyrir vandað kaffihlaðborð þar sem borðin svigna undan krásum. Gott að njóta í fallegu umhverfi. Allur ágóði af kaffisölunni rennur til uppbyggingar sumarbúðastarfsins. Allir velkomnir!

-fréttatilkynning