Þátttakan var góð á mótinu og hefur farið ört vaxandi undanfarin ár. Ljósm. FEBAN

Stefán og Katrín Íslandsmeistarar í pútti á Garðavelli

Íslandsmót 60 ára og eldri í pútti fór fram á Garðavelli á Akranesi þriðjudaginn 10. ágúst. Keppt var í sól og sumarblíðu og tóku alls 69 keppendur þátt í mótinu, sem var í umsjón púttdeildar FEBAN. Keppendur komu víða að, en 27 voru frá Púttklúbbi Suðurnesja í Reykjanesbæ, 21 frá FEBAN á Akranesi, 15 frá Borgarbyggð og sex frá Kubbi á Ísafirði. Keppt var í einstaklingskeppni karla og kvenna auk sveitakeppni þar sem þrír skipuðu hvert lið.