Fréttir

true

Leitað að torkennilegu sjófari

Klukkan 18:35 í gærkvöldi voru björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna leitar á sjó nærri Borgarnesi. Sést hafði til torkennilegs hlutar á floti á Borgarvogi norðan við Brákarey, en óljóst hvort um gæti verið að ræða kajak eða annað sjófar. Sjóbjörgunarflokkur frá björgunarsveitinni Brák fór á vettvang sem og félagar þeirra frá Björgunarfélagi Akraness…Lesa meira

true

Jörð skalf á Nesjavöllum í nótt

Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli klukkan 00:36 í nótt. Fannst hann vel á á öllu suðvestanverðu landinu og meðal annars hér á Vesturlandi, alla leið í Grundarfjörð og Búðardal. Skjálftanum fylgdi minniháttar eftirskjálftavirkni. Þetta er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum síðan 1998 þegar skjálfti af stærð 4,6 varð á svipuðum slóðum. Jarðskjálftavirkni er þó…Lesa meira

true

Byggðarráð hvetur til að ráðist verði í tvöföldun vegarins

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt ályktun þar sem fagnað er nýlegri skýrslu Viðskiptaráðs þar sem fram koma tillögur um umbætur á stofnvegakerfi landsins. „Fram kemur að ábatasamasta einstaka verkefnið sé uppbygging leiðarinnar frá Hvalfjarðargöngum til Borgarness. Með því að breyta veginum í 2 + 2 akreinar, tvöfalda Hvalfjarðargöng, gera mislæg gatnamót og…Lesa meira

true

Náttúruverndarstofnun kallar eftir nýju fyrirkomulagi refaveiða

Náttúruverndarstofnun hefur uppfært áætlun sína um refaveiðar, en slík áætlun er að jafnaði gerð á þriggja ára fresti. Stofnunin leggur til að núverandi fyrirkomulag refaveiða verði endurskoðað. Vegna nýliðinna þriggja ára kemur m.a. fram í skýrslunni að árleg veiði á ref var að jafnaði tæplega sjö þúsund dýr. Samningar voru upphaflega gerðir við 57 sveitarfélög…Lesa meira

true

Sjaldan meira legið flatt

Bændur um allt vestanvert landið eru nú af kappi að slá og þurrka hey. Jörðin er æði blaut eftir mikla úrkomu frá því í byrjun júlí og tekur tíma fyrir vatnið að síga niður. En eftir langvarandi óþurrk gafst nú loks færi á heyskap og flestir sem nýta sér það. Sjaldan í seinni tíð hefur…Lesa meira

true

Þverá í Borgarfirði örugg í efsta sætinu

„Það var mikið af fiski í Þverá þegar við voru þar fyrir fáum dögum að veiða; flott vatn og mikið af fiski,“ sagði Skúli Sigurz Kristjánsson í samtali við Skessuhorn. Með honum við veiðar var Sólon Welding og þeir veiddu vel í túrnum. „Sumir hylirnir voru stappfullir af laxi en við fengum 13 laxa á…Lesa meira

true

Akrafjallsvegur verður lokaður til norðurs mánudag

Á morgun, mánudaginn 27. júlí, verður unnið við malbikun Akrafjallsvegar frá gatnamótum Akrafjallsvegar og Fellsendavegar. Framkvæmdirnar munu standa frá klukkan 09:00 til 17:00. Akrafjallsvegur verður því lokaður milli Höfðasels (Terra) á Akranesi og Hringvegar til norðurs. Hjáleið er um Akrafjallsveg og Hringveg. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Vegfarendur eru beðnir um að virða…Lesa meira

true

Skógar- og gróðureldar geisa víða í Evrópu

Vegna langvarandi þurrka í Evrópu eru nú víða krefjandi aðstæður vegna skógarelda. Í suðvesturhluta Frakklands loga miklir eldar og hefur yfir 300 þúsund manns í Frakklandi og Spáni verið gert að yfirgefa heimili sín. Eldar loga m.a. í norðurhluta Spánar, en auk þess víða um Portúgal, á Bretlandseyjum og Írlandi. Miklir hitar eru sömuleiðis á…Lesa meira

true

Tvennir síðustu tónleikar sumarsins í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Tvennir síðustu tónleikarnir í Sumartónleikaröðinni í Hallgrímskirkju verða sunnudaginn 26. júlí og sunnudaginn 2. ágúst kl. 16.00. Á fyrri tónleikunum eru það tvær ungar og upprennandi listakonur sem flytja glæsilega efnisskrá; María Qing Sigríðardóttir, selló og Ásta Dóra Finnsdóttir, píanó. Þær hafa nú þegar getið sér gott orð fyrir leik sinn; þær hafa leikið einleik…Lesa meira

true

Frumvarp um lengingu útivistartíma barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á barnaverndarlögum sem varðar útivistartíma barna. Umsagnarfrestur er til og með 28. ágúst nk. Í frumvarpsdrögunum er lagt til að útivistartími barna á aldrinum 10–12 ára verði lengdur um eina klukkustund yfir vetrartímann. Samkvæmt tillögunni verður þeim heimilt að vera á almannafæri…Lesa meira