Jörð skalf á Nesjavöllum í nótt

Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli klukkan 00:36 í nótt. Fannst hann vel á á öllu suðvestanverðu landinu og meðal annars hér á Vesturlandi, alla leið í Grundarfjörð og Búðardal. Skjálftanum fylgdi minniháttar eftirskjálftavirkni. Þetta er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum síðan 1998 þegar skjálfti af stærð 4,6 varð á svipuðum slóðum. Jarðskjálftavirkni er þó algeng á svæðinu.