Frumvarp um lengingu útivistartíma barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á barnaverndarlögum sem varðar útivistartíma barna. Umsagnarfrestur er til og með 28. ágúst nk. Í frumvarpsdrögunum er lagt til að útivistartími barna á aldrinum 10–12 ára verði lengdur um eina klukkustund yfir vetrartímann. Samkvæmt tillögunni verður þeim heimilt að vera á almannafæri til klukkan 21:00 án fylgdar fullorðinna, í stað klukkan kl. 20 samkvæmt gildandi lagareglum. Jafnframt er lagt til að börn níu ára og yngri megi vera úti til klukkan 20:00 og að reglur fyrir börn á aldrinum 13–16 ára verði áfram miðaðar við klukkan 22:00. Undantekning gildir meðal annars þegar börn eru á heimferð úr skóla-, íþrótta- eða frístundastarfi. Einnig er lagt til að sumartími reglnanna gildi frá 1. júní til 1. september í stað þess að hefjast 1. maí. Markmiðið er að tengja reglurnar betur við skólaárið.