María Qing og Ásta Dóra.

Tvennir síðustu tónleikar sumarsins í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Tvennir síðustu tónleikarnir í Sumartónleikaröðinni í Hallgrímskirkju verða sunnudaginn 26. júlí og sunnudaginn 2. ágúst kl. 16.00. Á fyrri tónleikunum eru það tvær ungar og upprennandi listakonur sem flytja glæsilega efnisskrá; María Qing Sigríðardóttir, selló og Ásta Dóra Finnsdóttir, píanó. Þær hafa nú þegar getið sér gott orð fyrir leik sinn; þær hafa leikið einleik með sinfóníuhljómsveitum og haldið fjölbreytta tónleika hér heima og erlendis. Þær leika verk eftir Chopin og Beethoven og einnig glæsilega tangótónlist og spænska tónlist.

Tvennir síðustu tónleikar sumarsins í Hallgrímskirkju í Saurbæ - Skessuhorn