Skógar- og gróðureldar geisa víða í Evrópu

Vegna langvarandi þurrka í Evrópu eru nú víða krefjandi aðstæður vegna skógarelda. Í suðvesturhluta Frakklands loga miklir eldar og hefur yfir 300 þúsund manns í Frakklandi og Spáni verið gert að yfirgefa heimili sín. Eldar loga m.a. í norðurhluta Spánar, en auk þess víða um Portúgal, á Bretlandseyjum og Írlandi. Miklir hitar eru sömuleiðis á Íberíuskaga, vestur- og miðhluta Frakklands, norðurhluta Finnlands og hluta af vestanverðum Balkanskaga, eins og sjá má á meðfylgjandi korti. Þá er einnig skilgreind mikil hætta í dreifðum svæðum í Mið-Evrópu og hlutum Tyrklands, auk svæða í Norður-Afríku.