Akrafjallsvegur verður lokaður til norðurs mánudag

Á morgun, mánudaginn 27. júlí, verður unnið við malbikun Akrafjallsvegar frá gatnamótum Akrafjallsvegar og Fellsendavegar. Framkvæmdirnar munu standa frá klukkan 09:00 til 17:00. Akrafjallsvegur verður því lokaður milli Höfðasels (Terra) á Akranesi og Hringvegar til norðurs. Hjáleið er um Akrafjallsveg og Hringveg. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, en þau eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas sem vinnur verkið.