Sæþotur og gúmmíbjörgunarbátar voru notaðir við leitina. Ljósm. mm

Leitað að torkennilegu sjófari

Klukkan 18:35 í gærkvöldi voru björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna leitar á sjó nærri Borgarnesi. Sést hafði til torkennilegs hlutar á floti á Borgarvogi norðan við Brákarey, en óljóst hvort um gæti verið að ræða kajak eða annað sjófar. Sjóbjörgunarflokkur frá björgunarsveitinni Brák fór á vettvang sem og félagar þeirra frá Björgunarfélagi Akraness og björgunarsveitunum Ok og Heiðari í Borgarfirði. Um tíma var leitað á nokkrum sæþotum og gúmmíbjörgunarbáti á sjó og meðfram ströndinni. Þyrla Landhelgisgæslunnar mætti á svæðið og hóf leit. Á landi voru björgunarsveitir tilbúnar með dróna með hitamyndavél, en slík tæki eru þó ekki sett á loft meðan þyrla er á sveimi. Allt viðbragð var afturkallað upp úr klukkan 21 þegar í ljós hafði komið að um var að ræða heimasmíðaða, mannlausa smáskútu sem rekið hafði á sjó út frá Borgarnesi.

Vel búinn dróni frá Björgunarsveitinni Heiðari var til taks, en hann er ekki settur á loft meðan þyrla er á flugi