Fréttir

true

Hvöss sunnanátt um norðvestanvert landið

Um norðavestanvert landið er spáð hvössum og byljóttum vindi frá því seint í kvöld og fram yfir miðjan dag á morgun. Hviður í sunnanátt geta staðbundið orðið allt að 30-35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar. Þá er varað við talsverðu sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls.Lesa meira

true

Sturluhátíð er á morgun

„Eitt tilhlökkunarefni hvers sumars er Sturluhátíðin, sem ár hvert er haldin annan laugardag í júlí sem að þessu sinni ber upp á 11. júlí nk. Sturluhátíðin er kennd við sagnaritarann Sturlu Þórðarson sem bjó á Staðarhóli, Saurbæ í Dölum. Hátíðin sjálf verður í íþróttahúsinu að Laugum í Sælingsdal. Undanfarin ár hefur hún verið ótrúlega fjölsótt;…Lesa meira

true

Þverá örugg í efsta sætinu

Veiðitölur eru farnar að berast úr laxveiðiánum. Á vef Landssambands veiðifélaga gengur reyndar treglega að fá inn tölur frá mörgum laxveiðiám. Engu að síður vitum við að veiðin hefur lagast í mörgum þeirra, sérstaklega á Vestur- og Suðurlandi. Þverá í Borgarfirði er örugg í efsta sætinu núna. „Það eru komnir 550 laxar hjá okkur í…Lesa meira

true

Varðskip með vatn til Flateyjar

Varðskipið Þór átti viðkomu í Flatey á Breiðafirði á miðvikudagsmorgun með vatn til að bæta vatnsbirgðir í eyjunni. Á fjórða tug tonna af vatni var dælt á vatnskerfi eyjarinnar. Ferðin var farin að beiðni Vegagerðarinnar. Vegagerðin kannaði jafnframt hvort þörf væri á að flytja sorp frá eyjunni eða olíu til hennar, en svo reyndist ekki…Lesa meira

true

Stórar göngur að hellast inn í Laxá í Leirársveit

Svo virðist sem laxinn sé loksins að ganga í árnar af krafti og vel hefur veiðst síðustu daga í ám á Vesturlandi. Við heyrðum í veiðimanni sem staddur var við Laxá í Leirsveit á miðvikudagskvöld og hann hafi aldrei séð svona stórar laxagöngur. Og það sama var gerast í ósnum í Elliðaánum sama dag, hellingur…Lesa meira

true

Herskip taka kost á Grundartanga

Óvenjulega mikil skipaumferð var um Hvalfjörð í gær. Skipin voru auk þess af stærri gerðinni og ekki hefðbundin flutningaskip eins og nær daglega sigla þar um. Í byrjun dags sigldu dráttarbátar hverja ferðina af annarri með pramma í eftirdragi. Þá var breska herskipið Tidespring lóðsað inn fjörðinn en síðdegis var það flugmóðurskipið HMS Prinse of…Lesa meira

true

Mikill fjöldi ferðamanna í Grundarfirði síðustu daga

Það sem af er júlí hefur hvert skemmtiferðaskipið af öðru komið til hafnar í Grundarfirði þar sem ferðamenn streyma í land og skoða það sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða. Á laugardaginn komu skipin Carnival Legend og Le Austral til hafnar í blíðskaparveðri. Á sunnudaginn lá svo Spirit of discovery við Norðurgarð en það…Lesa meira

true

Fyrri störf og reynsla mun nýtast

Rætt við Bjarka Þorsteinsson sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit Borgnesingurinn Bjarki Þorsteinsson tók fyrr í sumar við starfi sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar. Líkt og með aðra nýja bæjar- og sveitarstjóra í landshlutanum fékk Skessuhorn að fræðast aðeins um manninn. Fyrst er Bjarki spurður um uppruna, fjölskyldu og fyrri störf. „Ég er fæddur og uppalinn í Borgarnesi og hef lengst…Lesa meira

true

Raforkukostnaður lækkar í dreifbýli og hjá heimilum á köldum svæðum

Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku var samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði og tóku lagabreytingarnar gildi 1. júlí. Áhrifin ættu að birtast strax í rafmagnsreikningum sem berast heimilum og fyrirtækjum í upphafi næsta mánaðar. Nýju lögin fela í sér að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku…Lesa meira

true

Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst

Kjósendur ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Atkvæðagreiðslan snýst ekki um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið heldur eingöngu um hvort viðræður um mögulega aðild verði teknar upp á ný. Viðmiðunardagur kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar er miðvikudaginn 22. júlí kl. 12 á hádegi.…Lesa meira