
Raforkukostnaður lækkar í dreifbýli og hjá heimilum á köldum svæðum
Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku var samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði og tóku lagabreytingarnar gildi 1. júlí. Áhrifin ættu að birtast strax í rafmagnsreikningum sem berast heimilum og fyrirtækjum í upphafi næsta mánaðar.