Sigurður M Þorvaldsson með lax úr Þverá í gærdag. Ljósm. ap

Þverá örugg í efsta sætinu

Veiðitölur eru farnar að berast úr laxveiðiánum. Á vef Landssambands veiðifélaga gengur reyndar treglega að fá inn tölur frá mörgum laxveiðiám. Engu að síður vitum við að veiðin hefur lagast í mörgum þeirra, sérstaklega á Vestur- og Suðurlandi. Þverá í Borgarfirði er örugg í efsta sætinu núna. „Það eru komnir 550 laxar hjá okkur í Þverá og Kjarará. Í gær veiddust 34 laxar í Þverá og 100 í fyrradag,“ sagði Aðalsteinn Pétursson við Þverá og bætti við: „Ég man varla eftir svona góðri veiði í Þverá á þessum tíma.“