
Hvöss sunnanátt um norðvestanvert landið
Um norðavestanvert landið er spáð hvössum og byljóttum vindi frá því seint í kvöld og fram yfir miðjan dag á morgun. Hviður í sunnanátt geta staðbundið orðið allt að 30-35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar. Þá er varað við talsverðu sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls.