
Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst
Kjósendur ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Atkvæðagreiðslan snýst ekki um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið heldur eingöngu um hvort viðræður um mögulega aðild verði teknar upp á ný. Viðmiðunardagur kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar er miðvikudaginn 22. júlí kl. 12 á hádegi. Viðmiðunardagur kjörskrár segir til um hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá. Ef kjósandi flytur lögheimili sitt eftir þann tíma er hann enn á kjörskrá miðað við fyrra heimilisfang.