Herskip taka kost á Grundartanga

Óvenjulega mikil skipaumferð var um Hvalfjörð í gær. Skipin voru auk þess af stærri gerðinni og ekki hefðbundin flutningaskip eins og nær daglega sigla þar um. Í byrjun dags sigldu dráttarbátar hverja ferðina af annarri með pramma í eftirdragi. Þá var breska herskipið Tidespring lóðsað inn fjörðinn en síðdegis var það flugmóðurskipið HMS Prinse of Wales sem sigldi inn og lagðist sömuleiðis að Grundartangahöfn. Skipið er breskt flugmóðurskip og flaggskip hins Konunglega breska sjóhers. Skipið er 280 metra langt og mesta breidd þess 73 metrar. Á Grundartanga var fólki hleypt um borð í hollum til að skoða skipið og þá eru auk þess miklir flutningar á vistum í skipið, en í áhöfn þess eru um 1300 sjóliðar.