
Skipið Spirit of Discovery lá við Norðurgarð og gnæfði yfir höfnina. Ljósm. tfk
Mikill fjöldi ferðamanna í Grundarfirði síðustu daga
Það sem af er júlí hefur hvert skemmtiferðaskipið af öðru komið til hafnar í Grundarfirði þar sem ferðamenn streyma í land og skoða það sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða. Á laugardaginn komu skipin Carnival Legend og Le Austral til hafnar í blíðskaparveðri. Á sunnudaginn lá svo Spirit of discovery við Norðurgarð en það er stærsta skipið sem hefur lagst að bryggju í Grundarfirði. Á mánudaginn var svo stærsti dagur sumarsins til þessa þegar skipið Sky Princess lá úti á firðinum þar sem rúmlega 3.600 farþegar voru fluttir í land. Á þessum þremur dögum voru rúmlega 7.200 farþegar sem fóru um höfnina í góðu veðri og nutu lífsins.