
Þór í Flatey. Ljósm. Landhelgisgæslan
Varðskip með vatn til Flateyjar
Varðskipið Þór átti viðkomu í Flatey á Breiðafirði á miðvikudagsmorgun með vatn til að bæta vatnsbirgðir í eyjunni. Á fjórða tug tonna af vatni var dælt á vatnskerfi eyjarinnar. Ferðin var farin að beiðni Vegagerðarinnar. Vegagerðin kannaði jafnframt hvort þörf væri á að flytja sorp frá eyjunni eða olíu til hennar, en svo reyndist ekki vera.