Fréttir

true

Sturluhátíð er á morgun

„Eitt tilhlökkunarefni hvers sumars er Sturluhátíðin, sem ár hvert er haldin annan laugardag í júlí sem að þessu sinni ber upp á 11. júlí nk. Sturluhátíðin er kennd við sagnaritarann Sturlu Þórðarson sem bjó á Staðarhóli, Saurbæ í Dölum. Hátíðin sjálf verður í íþróttahúsinu að Laugum í Sælingsdal. Undanfarin ár hefur hún verið ótrúlega fjölsótt;…Lesa meira

true

Þverá örugg í efsta sætinu

Veiðitölur eru farnar að berast úr laxveiðiánum. Á vef Landssambands veiðifélaga gengur reyndar treglega að fá inn tölur frá mörgum laxveiðiám. Engu að síður vitum við að veiðin hefur lagast í mörgum þeirra, sérstaklega á Vestur- og Suðurlandi. Þverá í Borgarfirði er örugg í efsta sætinu núna. „Það eru komnir 550 laxar hjá okkur í…Lesa meira

true

Varðskip með vatn til Flateyjar

Varðskipið Þór átti viðkomu í Flatey á Breiðafirði á miðvikudagsmorgun með vatn til að bæta vatnsbirgðir í eyjunni. Á fjórða tug tonna af vatni var dælt á vatnskerfi eyjarinnar. Ferðin var farin að beiðni Vegagerðarinnar. Vegagerðin kannaði jafnframt hvort þörf væri á að flytja sorp frá eyjunni eða olíu til hennar, en svo reyndist ekki…Lesa meira

true

Stórar göngur að hellast inn í Laxá í Leirársveit

Svo virðist sem laxinn sé loksins að ganga í árnar af krafti og vel hefur veiðst síðustu daga í ám á Vesturlandi. Við heyrðum í veiðimanni sem staddur var við Laxá í Leirsveit á miðvikudagskvöld og hann hafi aldrei séð svona stórar laxagöngur. Og það sama var gerast í ósnum í Elliðaánum sama dag, hellingur…Lesa meira

true

Herskip taka kost á Grundartanga

Óvenjulega mikil skipaumferð var um Hvalfjörð í gær. Skipin voru auk þess af stærri gerðinni og ekki hefðbundin flutningaskip eins og nær daglega sigla þar um. Í byrjun dags sigldu dráttarbátar hverja ferðina af annarri með pramma í eftirdragi. Þá var breska herskipið Tidespring lóðsað inn fjörðinn en síðdegis var það flugmóðurskipið HMS Prinse of…Lesa meira

true

Mikill fjöldi ferðamanna í Grundarfirði síðustu daga

Það sem af er júlí hefur hvert skemmtiferðaskipið af öðru komið til hafnar í Grundarfirði þar sem ferðamenn streyma í land og skoða það sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða. Á laugardaginn komu skipin Carnival Legend og Le Austral til hafnar í blíðskaparveðri. Á sunnudaginn lá svo Spirit of discovery við Norðurgarð en það…Lesa meira

true

Fyrri störf og reynsla mun nýtast

Rætt við Bjarka Þorsteinsson sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit Borgnesingurinn Bjarki Þorsteinsson tók fyrr í sumar við starfi sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar. Líkt og með aðra nýja bæjar- og sveitarstjóra í landshlutanum fékk Skessuhorn að fræðast aðeins um manninn. Fyrst er Bjarki spurður um uppruna, fjölskyldu og fyrri störf. „Ég er fæddur og uppalinn í Borgarnesi og hef lengst…Lesa meira

true

Raforkukostnaður lækkar í dreifbýli og hjá heimilum á köldum svæðum

Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku var samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði og tóku lagabreytingarnar gildi 1. júlí. Áhrifin ættu að birtast strax í rafmagnsreikningum sem berast heimilum og fyrirtækjum í upphafi næsta mánaðar. Nýju lögin fela í sér að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku…Lesa meira

true

Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst

Kjósendur ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Atkvæðagreiðslan snýst ekki um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið heldur eingöngu um hvort viðræður um mögulega aðild verði teknar upp á ný. Viðmiðunardagur kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar er miðvikudaginn 22. júlí kl. 12 á hádegi.…Lesa meira

true

Síðasta vikan í vinnuskólanum

Vinnuskólinn í Grundarfirði hefur verið starfræktur síðustu vikur þar sem nemendur sem voru að klára sjöunda til tíunda bekk í grunnskóla sinntu hinum ýmsu störfum undir dyggri leiðsögn leiðbeinanda. Krakkarnir hafa verið mjög duglegir og hreinsað og snyrt bæinn ásamt öðrum störfum. Síðasta mánudag hófst síðasta vikan þetta árið og þá heimsóttu krakkarnir Slökkvilið Grundarfjarðar…Lesa meira