Fréttir

true

Nýir nemendagarðar þegar fullsetnir

Næstkomandi haust verða teknir í notkun nýir nemendagarðar fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar í Húsi kynslóðanna, við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Húsið er enn í byggingu en stefnt að verklokum í tæka tíð fyrir skólabyrjun. Nemendagarðar fyrir 17 íbúa verða á neðstu hæð hússins, en á efri hæðum eru 12 íbúðir fyrir eldra fólk sem komnar eru…Lesa meira

true

Hestaþing Glaðs og úrtökukeppni fyrir Landsmót

Hestaþing Glaðs og úrtaka Glaðs, Storms og Hendingar fyrir Landsmót fór fram dagana 20. – 21. júní á félagssvæði Glaðs í Búðardal. Þátttaka var góð en alls voru 70 keppendur skráðir til leiks í átta greinum.  Að lokinni forkeppni á laugardeginum stóð Fremri-Gufudalur fyrir glæsilegri ræktunarbúsýningu. Fjöldi gesta sótti svæðið til að fylgjast með og…Lesa meira

true

Alþjóðleg glerlistarhátíð hefst á Hellissandi í dag

Alþjóðlega glerlistarhátíðin Glóandi jökull (Glowing Glacier Glass Festival) hefst í dag 24. júní  á Hellissandi og stendur til 19. júlí. Aðgangur er ókeypis og dagskráin opin öllum. Á hátíðinni verður boðið upp á sýningar, glerblástur í rauntíma, fyrirlestra, gjörninga og vinnustofur þar sem gestum gefst kostur á að kynnast glerlist og prófa sjálfir að vinna…Lesa meira

true

Í samsæti hlutanna nefnist sýning Leirlistarfélagsins

Sýningin Í samsæti hlutanna, afmælissýning Leirlistafélags Íslands í tilefni af 45 ára afmæli félagsins, var opnuð á HönnunarMars fyrr á þessu ári. Nú ferðast sýningin til Stykkishólms þar sem hún verður opnuð í Norska húsinu föstudaginn 3. júlí klukkan 17:00-19:00. Sýninguna prýða verk 34 leirlistamanna sem fást við gerð nytjahluta. „Leirmunir eru órjúfanlegur hluti hversdagslífsins.…Lesa meira

true

Skoða fýsileika baðlóns og lúxushótels

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt viljayfirlýsingu við JAE ehf. um að kanna mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði. Verkefnið snýr að þróun baðlóns og lúxushótels ofan þéttbýlisins. Unnið verður að rannsóknum og ábatagreiningu á næstu mánuðum og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir áður en október nk. gengur í garð. Að mati JAE ehf. er…Lesa meira

true

Riðið eftir leirunum við Hvammsfjörð

Hestamönnum finnst fátt skemmtilegra en að „ríða skæting“ eftir sléttum fjörum. Hrossin njóta þess ekki síður. Þannig eru Löngufjörur á Snæfellsnesi ein vinsælasta reiðleiðin í landshlutanum. Þessi mynd var hins vegar tekin að kvöldlagi sl. sunnudagskvöld á leirum Hvammsfjarðar, norðan við Búðardal í Dölum.Lesa meira

true

Tvær nýjar fastanefndir

Bæjarstjórn Akraness samþykkti breytingar á bæjarmálasamþykkt í síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 18. júní. Meðal breytinga er að reglulegir fundir bæjarstjórnar verða framvegis haldnir klukkan 15 í stað klukkan 17. Fundir verða áfram annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. Jafnframt var samþykkt að rýmka reglur um kjörgengi varaformanna í mennta- og menningarráði, velferðar- og…Lesa meira

true

Dean Martin á förum til Óman

Knattspyrnufélag ÍA og Dean Martin hafa komist að samkomulagi um að Dean láti af störfum hjá félaginu eftir leik ÍA og Breiðabliks sem fram fer laugardaginn 4. júlí næstkomandi. Dean mun innan tíðar taka við nýju og spennandi starfi hjá Al Nahdha, sem leikur í efstu deild í Óman á suðausturströnd Arabíuskagans. Dean hefur undanfarin…Lesa meira

true

Katrín ráðin skólastjóri Auðarskóla

Katrín Kristjánsdóttir, sem kennt hefur við Auðarskóla síðastliðin tvö ár, hefur verið ráðin skólastjóri Auðarskóla frá g með 1. ágúst nk. Katrín lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði árið 1981 og kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 2005. Hún hefur aflað sér mikillar þekkingar á skólastarfi og hefur m.a. kennt í Hafnarfirði og á Borðeyri. Katrín…Lesa meira

true

Mörkum rigndi niður í fjörugum leik á Meistaravöllum

Lokaumferð 11. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á Meistaravöllum í gær þar sem KR tók á móti ÍA í blíðskaparveðri. Skagamenn hófu leikinn með látum og voru með tögl og hagldir á vellinum fyrstu 20 mínúturnar. Ísak Máni Guðjónsson kom ÍA yfir á tólftu mínútu leiksins en Arnór Ingvi Traustason jafnaði metin…Lesa meira