Tvær nýjar fastanefndir

Bæjarstjórn Akraness samþykkti breytingar á bæjarmálasamþykkt í síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 18. júní. Meðal breytinga er að reglulegir fundir bæjarstjórnar verða framvegis haldnir klukkan 15 í stað klukkan 17. Fundir verða áfram annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. Jafnframt var samþykkt að rýmka reglur um kjörgengi varaformanna í mennta- og menningarráði, velferðar- og mannréttindaráði og skipulags- og umhverfisráði, þannig að ekki verði lengur gerð krafa um að þeir séu kjörnir aðalmenn í bæjarstjórn.