
Í samsæti hlutanna nefnist sýning Leirlistarfélagsins
Sýningin Í samsæti hlutanna, afmælissýning Leirlistafélags Íslands í tilefni af 45 ára afmæli félagsins, var opnuð á HönnunarMars fyrr á þessu ári. Nú ferðast sýningin til Stykkishólms þar sem hún verður opnuð í Norska húsinu föstudaginn 3. júlí klukkan 17:00-19:00. Sýninguna prýða verk 34 leirlistamanna sem fást við gerð nytjahluta. „Leirmunir eru órjúfanlegur hluti hversdagslífsins. Matardiskar sem notaðir eru daglega, kaffibollar sem ganga kynslóða á milli og blómavasar sem settir eru á mitt borðið þegar gesti ber að garði mynda umgjörð samverustunda og verða vettvangur tengslamyndunnar. Áhorfendum er boðið að eyða tíma með þessum ólíku hlutum og íhuga bæði nýjar og gamlar leiðir til að nýta keramik til samveru,“ segir í tilkynningu frá Leirlistarfélaginu. Sýningin í Norska húsinu verður opin alla daga frá kl. 11:00-17:00. Síðasti dagur sýningar verður sunnudagurinn 9. ágúst.
Sýningarstjórn er Agnes Ársælsdóttir en í sýningarnefnd eru Aldís Yngvadóttir, Guðný Rúnarsdóttir og Ylona Supèr. Sýningarhönnun annaðist Dorka Csora og grafíska hönnun sá Agnar Stefánsson um.
Listamenn eru:
Aldís Yngvadóttir, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Anna Story, Antonía Bergþórsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Auður Inga Ingvarsdóttir, Ása Tryggvadóttir, Daði Harðarson, Dagný Gylfadóttir, Elín Guðmundsdóttir, Erla Huld Sigurðardóttir, Erna Jónsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðný M. Magnúsdóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Hafdís Brands, Halldóra Hafsteinsdóttir, Halla Ásgeirsdóttir, Helga Arnalds, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Jane Alexander, Kata Sümegi, Katla Rúnarsdóttir, Katrín V. Karlsdóttir Dyrving, María Skarphéðinsdóttir, Melkorka Matthíasdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Sigríður Guðsteinsdóttir, Sunna Björg Sigfríðardóttir, Valdís Ólafsdóttir, Ylona Supèr, Þóra Breiðfjörð og Þórdís Baldursdóttir.