
Alþjóðleg glerlistarhátíð hefst á Hellissandi í dag
Alþjóðlega glerlistarhátíðin Glóandi jökull (Glowing Glacier Glass Festival) hefst í dag 24. júní á Hellissandi og stendur til 19. júlí. Aðgangur er ókeypis og dagskráin opin öllum. Á hátíðinni verður boðið upp á sýningar, glerblástur í rauntíma, fyrirlestra, gjörninga og vinnustofur þar sem gestum gefst kostur á að kynnast glerlist og prófa sjálfir að vinna með bráðið gler. Hjarta hátíðarinnar er færanlegur glerblástursofn, Niesenglass NG40, sem gerir lifandi glerblástur mögulegan á hverjum stað fyrir sig. Á opnunardegi hátíðarinnar verður alþjóðleg samsýning opnuð með verkum listamanna frá Íslandi, Danmörku, Tékklandi, Sviss, Þýskalandi, Írlandi, Kanada og Bretlandi. Sýningarstjóri er heimamaðurinn Bjarni Sigurbjörnsson.