
Skoða fýsileika baðlóns og lúxushótels
Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt viljayfirlýsingu við JAE ehf. um að kanna mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði. Verkefnið snýr að þróun baðlóns og lúxushótels ofan þéttbýlisins. Unnið verður að rannsóknum og ábatagreiningu á næstu mánuðum og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir áður en október nk. gengur í garð.