
Á fullri ferð á sunnudagskvöldið. Ljósm. María Gunnarsdóttir
Riðið eftir leirunum við Hvammsfjörð
Hestamönnum finnst fátt skemmtilegra en að „ríða skæting“ eftir sléttum fjörum. Hrossin njóta þess ekki síður. Þannig eru Löngufjörur á Snæfellsnesi ein vinsælasta reiðleiðin í landshlutanum. Þessi mynd var hins vegar tekin að kvöldlagi sl. sunnudagskvöld á leirum Hvammsfjarðar, norðan við Búðardal í Dölum.