
Mörkum rigndi niður í fjörugum leik á Meistaravöllum
Lokaumferð 11. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á Meistaravöllum í gær þar sem KR tók á móti ÍA í blíðskaparveðri. Skagamenn hófu leikinn með látum og voru með tögl og hagldir á vellinum fyrstu 20 mínúturnar. Ísak Máni Guðjónsson kom ÍA yfir á tólftu mínútu leiksins en Arnór Ingvi Traustason jafnaði metin fyrir KR þremur mínútum síðar, staðan 1:1 og ljóst að það stefndi í frábæra skemmtun fyrir þá 1407 áhorfendur sem mættir voru á völlinn. Adam var ekki lengi í paradís og bara mínútu síðar komust Skagamenn yfir þegar Ómar Björn Stefánsson skoraði, 1:2. Luke Rae jafnaði aftur metin fyrir KR á 32. mínútu með góðri afgreiðslu eftir sendingu frá Arnóri Ingva, staðan í leikhléi 2:2.