Dean Martin knattspyrnuþjálfari á Langasandi. Ljósm. úr safni Skessuhorns/kgk

Dean Martin á förum til Óman

Knattspyrnufélag ÍA og Dean Martin hafa komist að samkomulagi um að Dean láti af störfum hjá félaginu eftir leik ÍA og Breiðabliks sem fram fer laugardaginn 4. júlí næstkomandi. Dean mun innan tíðar taka við nýju og spennandi starfi hjá Al Nahdha, sem leikur í efstu deild í Óman á suðausturströnd Arabíuskagans. Dean hefur undanfarin misseri gegnt mikilvægu hlutverki hjá KFÍA sem annar tveggja aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, ásamt Aroni Ými, auk þess að sinna styrktarþjálfun innan félagsins. „Dean hefur verið afar metnaðarfullur og faglegur í sínum störfum hjá félaginu og þökkum við honum kærlega fyrir hans framlag til ÍA, í bili,“ segir í tilkynningu frá félaginu.