Margrét Guðbjartsdóttir með gæðingana sína frá Miklagarði. Embla frá Miklagarði sigurvegari í B-flokki og Gæðingatölti.

Hestaþing Glaðs og úrtökukeppni fyrir Landsmót

Hestaþing Glaðs og úrtaka Glaðs, Storms og Hendingar fyrir Landsmót fór fram dagana 20. – 21. júní á félagssvæði Glaðs í Búðardal. Þátttaka var góð en alls voru 70 keppendur skráðir til leiks í átta greinum.  Að lokinni forkeppni á laugardeginum stóð Fremri-Gufudalur fyrir glæsilegri ræktunarbúsýningu. Fjöldi gesta sótti svæðið til að fylgjast með og ríkti góð stemning meðal keppenda og áhorfenda alla helgina.