Fréttir

true

Rannsaka fjársvikamál

Sjö umferðarslys voru meðal verkefna sem Lögreglan á Vesturlandi kom að í liðinni viku. Tvær tilkynningar bárust vegna eignaspjalla og fjórar tilkynningar bárust lögreglu vegna grunsamlegra aðila sem voru að safna pening fyrir hjálparsamtök, meðal annars á Norðurálsmóti á Akranesi. Lögregla er með þau mál til rannsóknar. Þá fékk lögreglan í vikunni mál til rannsóknar…Lesa meira

true

Ungar vonarstjörnur í viðskiptalífinu

Ráðgjafafyrirtækið Góð samskipti hefur valið 20 vonarstjörnur í viðskiptalífinu árið 2026. Á listanum er efnilegt fólk í atvinnulífinu sem Góð samskipti telur að gæti endað á 40/40 listanum sínum síðar. Tvær þessara vonarstjarna eru ungir Skagamenn sem hafa náð langt í fyrirtækjarekstri. Það eru þeir Ragnar Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri Akraborgar og FANG á Akranesi og…Lesa meira

true

Tvær sýningar opnaðar í Pakkhúsinu í Ólafsvík

Tvær sýningar verða opnaðar í Pakkhúsinu í Ólafsvík á morgun, fimmtudaginn 25. júní klukkan 15. Þar verður annars vegar varpað ljósi á verslunarsögu Ólafsvíkur og hins vegar líf og störf skáldsins Jóhanns Jónssonar. Sýningin um verslunarsögu Ólafsvíkur er unnin og sett upp af Sveini Þór Elínbergssyni og Guðlaugu Dröfn Gunnarsdóttur. Á sýningunni er saga verslunar…Lesa meira

true

Endurbætt vatnsrennibraut tekin í notkun í Hólminum

Gestir sundlaugarinnar í Stykkishólmi geta nú notið endurbættrar vatnsrennibrautar þar sem bæði öryggi hefur verið bætt sem og upplifun aukin. Helsta breytingin felst í því að efri hluti brautarinnar hefur verið yfirbyggður, sem gerir ferðina niður jafnari og veitir notendum meira skjól. Jafnframt hefur verið komið fyrir svokölluðum dagsbirtuhringjum sem hleypa náttúrulegri birtu inn í…Lesa meira

true

Nýir nemendagarðar þegar fullsetnir

Næstkomandi haust verða teknir í notkun nýir nemendagarðar fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar í Húsi kynslóðanna, við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Húsið er enn í byggingu en stefnt að verklokum í tæka tíð fyrir skólabyrjun. Nemendagarðar fyrir 17 íbúa verða á neðstu hæð hússins, en á efri hæðum eru 12 íbúðir fyrir eldra fólk sem komnar eru…Lesa meira

true

Hestaþing Glaðs og úrtökukeppni fyrir Landsmót

Hestaþing Glaðs og úrtaka Glaðs, Storms og Hendingar fyrir Landsmót fór fram dagana 20. – 21. júní á félagssvæði Glaðs í Búðardal. Þátttaka var góð en alls voru 70 keppendur skráðir til leiks í átta greinum.  Að lokinni forkeppni á laugardeginum stóð Fremri-Gufudalur fyrir glæsilegri ræktunarbúsýningu. Fjöldi gesta sótti svæðið til að fylgjast með og…Lesa meira

true

Alþjóðleg glerlistarhátíð hefst á Hellissandi í dag

Alþjóðlega glerlistarhátíðin Glóandi jökull (Glowing Glacier Glass Festival) hefst í dag 24. júní  á Hellissandi og stendur til 19. júlí. Aðgangur er ókeypis og dagskráin opin öllum. Á hátíðinni verður boðið upp á sýningar, glerblástur í rauntíma, fyrirlestra, gjörninga og vinnustofur þar sem gestum gefst kostur á að kynnast glerlist og prófa sjálfir að vinna…Lesa meira

true

Í samsæti hlutanna nefnist sýning Leirlistarfélagsins

Sýningin Í samsæti hlutanna, afmælissýning Leirlistafélags Íslands í tilefni af 45 ára afmæli félagsins, var opnuð á HönnunarMars fyrr á þessu ári. Nú ferðast sýningin til Stykkishólms þar sem hún verður opnuð í Norska húsinu föstudaginn 3. júlí klukkan 17:00-19:00. Sýninguna prýða verk 34 leirlistamanna sem fást við gerð nytjahluta. „Leirmunir eru órjúfanlegur hluti hversdagslífsins.…Lesa meira

true

Skoða fýsileika baðlóns og lúxushótels

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt viljayfirlýsingu við JAE ehf. um að kanna mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði. Verkefnið snýr að þróun baðlóns og lúxushótels ofan þéttbýlisins. Unnið verður að rannsóknum og ábatagreiningu á næstu mánuðum og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir áður en október nk. gengur í garð. Að mati JAE ehf. er…Lesa meira

true

Riðið eftir leirunum við Hvammsfjörð

Hestamönnum finnst fátt skemmtilegra en að „ríða skæting“ eftir sléttum fjörum. Hrossin njóta þess ekki síður. Þannig eru Löngufjörur á Snæfellsnesi ein vinsælasta reiðleiðin í landshlutanum. Þessi mynd var hins vegar tekin að kvöldlagi sl. sunnudagskvöld á leirum Hvammsfjarðar, norðan við Búðardal í Dölum.Lesa meira