Ungar vonarstjörnur í viðskiptalífinu

Ráðgjafafyrirtækið Góð samskipti hefur valið 20 vonarstjörnur í viðskiptalífinu árið 2026. Á listanum er efnilegt fólk í atvinnulífinu sem Góð samskipti telur að gæti endað á 40/40 listanum sínum síðar. Tvær þessara vonarstjarna eru ungir Skagamenn sem hafa náð langt í fyrirtækjarekstri. Það eru þeir Ragnar Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri Akraborgar og FANG á Akranesi og Jónas Kári Eiríksson, framkvæmdastjóri vörustýringar hjá Öskju.